Að ríða eins og riddari

  • 29. júlí 2014
  • Fréttir
Eiðfaxi Image
Þórarinn skoraði á sjálfan sig að verða betri reiðmaður.

Hugarfarsbreyting Þórarins Ragnarssonar gagnvart námi sínu varð honum gagnlegt veganesti. Með metnað og æðruleysi að leiðarljósi hefur hann nú náð glæstum árangri á stuttum tíma. Þórarinn getur einnig prísað sig sælan með kvenkostinn sem hann kynntist í háskólanum að Hólum. Kærastan hans, Hulda Finnsdóttir, átti nefnilega ungfola sem reyndist síðar hæst dæmda kynbótahross heims. Spuni frá Vesturkoti er nú Landsmótssigurvegari A-flokks gæðinga, undir stjórn hins 25 ára gamla Norðlendings.

Viðtal við Þórarinn Ragnarsson má nálgast í 7. Tölublaði Eiðfaxa. Hægt er að gerast áskrifandi í síma 511 6622 eða með því að senda tölvupóst á [email protected].

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link