Gæðingur fallinn frá
Það stundum sagt að þeir missi sem eigi en það er lítil huggun þegar kemur að því að kostagripir falla frá langt fyrir aldur fram.
Á heimasíðu Hestheima kemur fram að gæðingurinn Hekla frá Mýrdal hafi veikst og drepist um miðjan desember.
Hekla var dóttir Topps frá Eyjólfsstöðum og 1.verðlauna Kolfinnsdótturinnar Vonar frá Mýrdal 2 en sjálf var hún sýnd í sinn hæsta einstaklingsdóm árið 2007 þegar hún hlaut 8,30 í aðaleinkunn. Þá var hún talsvert í hringvallarkeppni og fór yfir 8,60 í A-flokki gæðinga og yfir 7 í fimmgangi setin af þáverandi eiganda sínum Erling Sigurðssyni. Árið 2007 eignast Sigurður Sigurðarson hryssuna en núverandi eigendur í Hestheimum eignast hana árið 2008.
Undan Heklu eru til fjögur afkvæmi en hún var fylfull við Hágangi frá Narfastöðum þegar hún féll.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH