Mögnuð vefsíða –
Vefsíðan hestaleit.is er ný af nálinni. Á síðunni skráir fólk sig inn og auglýsir hross til sölu á einfaldan hátt. Yfir 200 hross eru skráð á vefsíðunni núna og vitanlega á öllum verðum, öllum aldri og um allan heim, m.a. frá Svíþjóð, Danmörku, Noregi, Austurríki o.fl. Þegar smellt er á ‘Söluaðilar’ efst í valmynd síðunnar er hægt að leita að hrossum eftir söluaðilum. Hægt er að velja um að skoða síðuna á íslensku, ensku eða sænsku.
Eiðfaxi hvetur hestamenn til að kynna sér þetta frábæra verkfæri við hestaleitina.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH