Kortasjá LH uppfærð
Alls komnir 8038 kílómetrar af merktum reiðleiðum inn á Kortasjána
Reiðleiðir í Skagafirði, og að hluta inn á Eyjafjarðarsvæðið, eru nú komnar í Kortasjá LH. Þær reiðleiðir sem bættust við í síðustu uppfærslu eru 1174 kílómetrar, þannig að nú eru alls komnir 8038 kílómetrar af merktum reiðleiðum inn á Kortasjána. Síðar í vetur bætast svo við reiðleiðir í Eyjafirði.
Ágætu hestamenn! Endilega komið með ábendingar um það sem betur mætti fara. Hægt er að senda tölvupóst á [email protected] eða [email protected]
Halldór Halldórsson , formaður samgöngunefndar LH
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH