Kvennatölt Léttis
Bleikt þema verður á opnu kvennatölt Léttis sem verður haldið í Top Reiter höllinni á Akureyri laugardaginn 28. apríl nk.
„Mótshaldarar lofa gríðarlega skemmtilegu kvöldi og minna á að allar konur, bæði vanar keppniskonur sem og lítið og óvanar ættu að skella sér í mótið og skemmta sér konunglega. Fréttaritari Léttis reyndi að grafa upp úr mótshöldurum hvað nákvæmlega yrði á boðstólnum. Þær vildu sem minnst segja enda fyrirspyrjandi ekki rétt kynjaður. Það er deginum ljósara hins vegar að kvennatöltið er líklega sú uppákoma á hverjum vetri sem skilur eftir sig flest bros og hlátrasköll og vonum við að sem flestir láti sjá sig, hvort sem þær keppa eða ekki,“ segir í frétt á heimasíðu Léttis.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH