Framsögumaður er Eyjólfur Ísólfsson
Aðalfundur Hrossaræktarsamtaka Suðurlands verður á miðvikudaginn 5.feb (á morgun) í félagsheimili Sleipnis á Selfossi. Framsögumaður fundarins verður Eyjólfur Ísólfsson og hefst fundurinn kl 20:00- boðið verður uppá vöfflur og kaffi.
Dagskrá fundarins er eftirfarandi :
- Fundarsetning, skipun starfsmanna fundarins
- Skýrsla stjórnar, formaður HS, Sveinn Steinarsson.
- Ársreikningur, María Þórarinsdóttir.
- Umræður og afgreiðsla skýrslu stjórnar og reikninga.
- Tekin ákvörðun um félagsgjald 2013, tillaga frá stjórn .
- Kosning formanns til næstu þriggja ára.
- Kosning þriggja varamanna til eins árs.
- Kosning tveggja skoðunarmanna og tveggja til vara
- Kosning um aðal og varafulltrúa á aðalf Búnaðarsambands Suðurl 2014.
- Kosning aðal og varamanna á aðalfund Félags hrossabænda 2014.
- Kaffihlé-
- 12.Gestur fundarins Eyjólfur Ísólfsson, framsaga og umræður.
- 13.Kynning á aðkomu Hrossaræktarsamtökum Suðurlands að viðburðinum Horse Expo og umræður/fyrirspurnir.
- 14.önnur mál.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH