Vaðall á Stóðhestadegi Eiðfaxa
Rétt tæp vika er í Stóðhestadag Eiðfaxa sem fram fer á Brávöllum á Selfossi nk. laugardag kl. 14.
Einn af þeim spennandi stóðhestum sem koma fram er Vaðall frá Akranesi.
Vaðall er stæðilegur gæðingur á fimmta vetri undan Aðli frá Nýjabæ og Hrafnsdótturinni Þræsingu frá Garðabæ. Í fyrra hlaut hann jafnan og góðan dóm, 8,36 í aðaleinkunn, 8,30 fyrir sköpulag og 8,40 fyrir kosti og stendur með 120 stig í kynbótamati. Þar af hlaut hann einkunnina 9 fyrir hófa og vilja og geðslag og 8,5 fyrir samræmi, fótagerð, prúðleika, tölt, stökk og fegurð í reið.
Þessi flugvakri og þjáli gæðingur var hins vegar ekki sýndur á landsmóti í fyrra þrátt fyrir að vera meðal hæst dæmdu 4 vetra stóðhesta síðasta árs og er það því einkar ánægjulegt að fá tækifæri til að bera augum þennan glæsilega hest á Brávöllum á laugardag.
Vaðall verður til notkunar í Hvalfjarðarsveit en allar upplýsingar um hann gefur Brynjar Kristinssoní s. 899-1511 eða gegnum netfangið [email protected]. Folatollur undir gripinn kostar 65.000 kr.
Stóðhestadagur Eiðfaxa er hugsaður sem vettvangur til að kynna marga af bestu stóðhestum landsins fyrir áhugasömum ræktendum. Auk kynninga og sýninga á ungum og upprennandi og öðrum þekktari stóðhestum verður boðið upp á kennslusýningu með Þorvaldi Árna Þorvaldssyni reiðkennara í reiðhöll Sleipnis.
Þá verða Gári frá Auðsholtshjáleigu, Víðir frá Prestsbakka og Lukku-Láki frá Stóra-Vatnsgarði til sýnis inn í reiðhöll félagsins og geta gestir og gangandi virt þessa myndargripi fyrir sér.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH