Sölusýning á Sauðárkróki

  • 12. september 2011
  • Fréttir
Sölusýning á Sauðárkróki

Hrossaræktarsamband Skagfirðinga mun standa fyrir sölusýningu síðdegis föstudaginn 23. september næstkomandi á Léttfetavelli á Sauðárkróki. Á laugardeginum, 24. september, verður síðan margt um menn og hross í Laufskálarétt eins og fyrri ár.

Skráning hrossa á sölusýninguna fer fram í gegnum netfangið [email protected] eða í síma 453-6440. Ath. að gefa þarf upp fæðingarnr. hests, nafn og símanr. eiganda og knapa.
 
Síðasti skráningardagur er 20 september og er skráningargjald kr. 2000.- á hest, en kr. 1.500.- ef skráð eru 3 hross eða fleiri.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link