Hverjir verða knapar ársins ?

  • 4. nóvember 2012
  • Fréttir
Hverjir verða knapar ársins ?

Nú fer að styttast í Uppskeruhátíð hestamanna og er kvenpeningurinn eflaust farin að huga að dressi. Uppskeruhátíðin verður haldin á Broadway n.k. laugardag. Venja er að veita völdum hestamönnum viðkenningu fyrir afrek ársins og jafnan fylgir því nokkur spenna að sjá hverjir verða knapar ársins. Eiðfaxi fékk tvo mæta hrossaræktendur til að velta vöngum yfir viðurkenningum ársins.

Kristinn Guðnason, hrossaræktandi í Árbæjarhjáleigu
Íþróttaknapi: Valið í þessum flokki er aðeins að vefjast fyrir mér. Held að Íslandsmótið vegi meira en Norðurlandamótið og því tel ég að Jakob eða Árni Björn verða fyrir valinu. Held þó að Jakob hafi það því hann sigraði tvær greinar á Íslandsmótinu.  
 
Gæðingaknapi: Held það verði Sigurður Sigurðarson. Hann stóð sig frábærlega á Landsmótinu, vann A-flokkinn og var þriðji í B-flokknum. Síðan var hann með Blæju frá Lýtingsstöðum á síðsumarmóti hér á Hellu og fékk þar hæstu einkunn sem hefur verið gefin í B-flokki í ár. Það var mjög gaman að Einar Öder skildi vinna B-flokkinn og gerði hann það vel en Siggi hefur keppt á fleiri mótum. Einnig til gamans má geta er að báðir þessir menn hafi verið með hesta sína í góðu lagi hvað varðar ágrip og annað.
 
Skeiðknapi: Held það verði Sigurbjörn. Þó ég sé mikill Daníel Inga maður þá veðja ég á að Sigurbjörn fái titilinn. Það er enn sem komið er enginn orðinn jafngóður og Diddi í skeiðinu.
 
Kynbótaknapi: Ég verð að vera samkvæmur sjálfum mér og velja engan sem kynbótaknapa. Mér finnst það ekki rökrétt að verðlauna kynbótknapa, þeir eru bara að vinna vinunna sína og eru það hrossin sem ráða árangrinum. 
 
Efnilegasti knapinn: Þetta er kannski erfiðasti flokkurinn en þetta eru allt mjög efnilegir krakkar. Ásmundur Ernir hefur gert það mjög gott í ár, annar á Landsmótinu og gekk vel á Íslandsmótinu. Flosi er búin að standa sig mjög vel og er efnilegur hestamaður en held ég samt að það sé komið að Arnari Bjarka að fá titilinn. Honum hefur gengið mjög vel í sumar enda hefur hann lagt á sig mikla vinnu og sýnt mikin dugnað.  
 
Knapi ársins:  Agnar Snorri er mest erlendis svo við höfum ekki mikin samanburð við íslensku keppendurna. Ég skýt á Sigurð sem knapa ársins en hann er að hrærast í þessu öllu saman og hefur náð góðum árangir bæði hvað varðar keppni og kynbótasýningar. 
 
Gunnar Arnarson, hrossaræktandi í Auðsholtshjáleigu
Íþróttaknapi: Ég er ekki búin að fara djúpt í þetta en ég held að Jakob og Agnar séu líklegastir til að hljóta titilinn síðan Árni Björn. Þetta er hörð barátta en ég tel Jakob og Agnar vera með mestu breiddina. 
 
Gæðingaknapi: Þar tel ég Einar Öder vera algjörlega öruggan með þennan titil. Hann er búin að sýna afburða hestamennsku á sínu sviði.
 
Skeiðknapi: Það verður Sigurbjörn Bárðarson en tel ég hann vera jafn öruggan og Einar. Þeir hafa báðir verið til fyrirmyndar og sýnt prúðmennsku og dreg ég ekkert undan með að hæla þeim því þeir eiga það skilið.
 
Kynbótaknapi: Gísli Gíslason fær þann titil. Hann er yfirburðarmaður, hann þjálfar og temur hrossin af sanngirni og nær að blanda skemmtilega saman þessum hefðbundna íslenska stíl og klassískri reiðmennsku. Gísli sýnir mikla breidd af hrossum sem hann hefur þjálfað sjálfur og fer gríðarlega skemmtileg að.
 
Efnilegasti knapinn: Hér er erfitt að gera upp á milli allir þessir krakkar eru flottir knapar og eiga framtíðina fyrir sér. En ef ég á að velja eitthvern tel ég Kára koma sterklegast til greina og einnig tel ég Arnar Bjarka og Ásmund líklega.
 
Knapi ársins: Það verður hann Guðmundur Björgvinsson en hann er með frábæran árangur á öllum sviðum hestmennskunar. Hann hefur náð feikna árangri hvort sem það er í gæðingakeppni, íþróttakeppni eða skeiðið. Mér finnst engin hafa tærnar þar sem hann hefur hælana. 
 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link