Grín og fjör á Fákssýningu

  • 22. apríl 2012
  • Fréttir
Grín og fjör á Fákssýningu

Það var mikið um dýrðir á stórsýningu Fáks í gærkvöldi og margir magnaðir hestar sem komu fram. Glæsileg sýning, vel að henni staðið og næsta fullt á áhorfendapöllum.

Fáksfélagar sýndu frábæran hestakost, fram komu knapar á ýmsum aldri með gæðinga sína og sérstaka athygli vöktu fjölskyldusýningar Matthíasar- og Selmu barna og Sigurbjörns Bárðarsonar og Fríðu, sem mætti með sinn „afkvæmahóp“.

Ólátabelgirnir í Fáki létu ekki sitt eftir liggja og gerðu óspart grín að fræknum hestamönnum.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link