Höskuldarvaka
Í kvöld, 16.júní verður efnt til „Höskuldarvöku“ í Logalandi í Borgarfirði og hefst dagskrá í myndum tali og tónum kl.20:30.
Eiðfaxi fékk dagskrána senda,..
en ræðumaður kvöldsins er Erling Ó. Sigurðsson reiðkennari, en hann var sem stráklingur í sveit hjá Höskuldi á Hofsstöðum. Aðrir sem taka til máls eru Guðrún Fjeldsted, sr. Geir Waage og Guðni Ágústsson fyrrv. Landbúnaðarráðherra.
Ýmislegt annað verður til skemmtunar og fróðleiks. Aðgangur er ókeypis. Veitingar verða seldar í hléi.
Á morgun, þann 17 júní verður svo efnt til kirkjureiðar og verður lagt upp kl. 10:00 frá Gróf og Hofstöðum. Guðsþjónusta verður í Reykholtskirkju kl. 11:00 en að henni lokinni fer fram vígsla gerðis og söðlabúrs sem hlotið hafa nafnið „Höskuldargerði“ og afhjúpaður verður minnisvarði um Höskuld.
Eiðfaxi vill hvetja hestamenn til þess að keyra í Borgarfjörðinn með reiðhesta sína og taka þátt í þessum skemmtilega reiðtúr, en vitað er um þó nokkuð af fólki sem hefur ákveðið að taka þátt.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH