Skráning á Síðsumarsýningu í Skagafirði
Haldin verður kynbótasýning í tengslum við stórmótið Fákaflug á Vindheimamelum um verslunarmannahelgina
Skráning fer fram í Leiðbeiningamiðstöðinni (s: 455-7100) miðvikudaginn 21. júl. og fimmtudaginn 22. júl. frá 9:00 til 16:00.
Utan þess tíma er skrifstofan lokuð. Einnig má senda tölvupóst á netfangið [email protected] fyrir tilsettan tíma.
Það sem fram þarf að koma við skráningu:
Nafn á hrossi og fæðinganúmer
Sýnandi
Greiðandi (nafn og kt.)
Greiðsluupplýsingar:
1125 – 26 – 710 kt:580901-3010
Skýr: Nafn á hrossi
Hross í fullnaðardóm: 14.500 kr.
Til að fá endurgreitt þarf að tilkynna forföll degi áður en sýningin hefst.
Síðasti skráningardagur og greiðsludagur er fimmtudagurinn 22. júlí. Nánari upplýsingar í fréttum á www.hrose.is
Reiknað er með að yfirlitssýning fari fram föstudaginn 30. júlí.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH