Neistaflug á stórsýningu
Reiðhöllin í Víðidal var funandi af fjöri laugardagskvöldið 30. apríl sl. þegar stórsýning Fáks fór fram. Miðað við fjölda ræktunarmiðaða sýninga í vetur þótti Eiðfaxa nokkuð kærkomið að sitja sýningu þar sem gaman og glóandi glens var uppistaða atriða.
Sýningin hefur verið sett saman í nokkru flýti. Fimm dögum fyrir sýningu auglýstu sýningarstjórar eftir atriðum og hafa hestamenn ekki látið á sér standa því upp úr krafsinu kom 19 skemmtileg atriði. Sýnir það og sannar að oft verður stórfínn eldur af litlum neista.
Mörg atriði voru þó kunnugleg. Þannig mættu vinirnir Svanhvít Gísladóttir og Númi frá Lindarholti í Víðidal og endurtóku atriði sitt frá Vesturlandssýningunni á dögunum, ungar Sörlastelpur heilluðu gesti eins og þær gerðu á Hestadögum í Reykjavík, keppni í tilþrifaskeiði, sem fyrst var keppt í á Ræktun 2011 vikunni áður, var endurtekin. Eldfljótir hestar og glóðheitir reiðmenn sýndu þá mikil tilþrif og er nokkuð ljóst að þessi nýja keppnisgrein berst út eins og eldur í sinu. Þá þótti atriði Viðars Ingólfssonar og Stemmu frá Holtsmúla I þar sem hryssan tölti glæsilega um höllina í sviðsljósi líkjast mikið atriði stórsýningarinnar fyrir ári, þegar Olil Amble og Kraflar frá Ketilsstöðum tendruðu loga í hugum áhorfenda. Það kom þó ekki að sök, stemning var á meðal ahorfenda sem fögnuðu vel því sem fyrir augu bar.
Eitthvað var þó þulur sýningarinnar funalegur með fjörið í hléi, því í rúman tíma þurftu „þægir“ áhorfendur í stúkum sínum að sitja undir fussandi endurtekningum þularins þar sem hann rak á eftirlegukindur í sæti sín. Ætti það að vekja þul til umhugsunar þurfi hann að áminna fólk um að hlusta á sig.
Kári Steinsson á keppnismerinni sinni Maríu frá Feti og Sara Sigurbjörnsdóttir á gæðingnum Jarli frá Mið-Fossum sýndu prúða reiðmennsku og glóandi fimiæfingar. Þá neistraði frá Hinriki Bragason og Sigri frá Hólabaki þegar þeir sýndu afköst þjálfunar og æfinga vetursins og hefur klárinn sjaldan sést jafn fimur og mjúkur. Hinrik mætti einnig með syni sínum Gústaf ásamt öðrum Íslandsmeisturum sem eru félagsmenn í Fáki, en félagið státar sig af sjö Íslandsmeistarahöfum.
Leiftrandi hryssur voru áberandi á sýningunni. Alls voru þrjú atriði þar sem ungar og ódæmdar klárhryssur sýndu listir sínar. Þá komu aðrar þekktari hryssur fram og sviku ekki áhorfendur frekar en fyrri daginn. Bylgja Gauksdóttir mætti á Grýtu frá Garðabæ og Helga Una Björnsdóttir á Karitas frá Kommu og svifu þær fimlega um salinn á fótaburðartölti. Það gerðu einnig Hulda Finnsdóttir á Jódísi frá Ferjubakka og Sigurður Sigurðarson á Glæðu frá Þjóðólfshaga. Sýningunni lauk svo á bombunum skíðlogandi Dívu frá Álfhólum og Söru Ástþórsdóttur ásamt Kjarnorku frá Kálfholti og Sigurði Sigurðarsyni.
Eitthvað hafa Fáksmenn svo sleppt fram af sér beislinu fram eftir nóttu á bjórkvöldi því fréttir bárust af bruna í bifreið fyrir utan félagsheimili þeirra á sunnudagsmorgunin og stendur hið sviðna bílhræ enn þar, til áminningar um eldheita sýningu.
Meðfylgjandi eru myndir frá sýningunni en fleiri myndir má einnig nálgast á heimasíðu Dags Brynjólfssonar áhugaljósmyndara.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH