Firmakeppni Smára
Mynd/smari.is
Firmakeppni hestamannafélagsins Smára verður haldin á Flúðum 1. maí og hefst stundvíslega kl. 14.
Keppt verður í eftirfarandi flokkum :
Pollaflokkur (9 ára og yngri)
Barnaflokkur (10-13 ára)
Unglingaflokkur (14-17 ára)
Ungmennaflokkur (18-21 árs)
Kvennaflokkur
Karlaflokkur
Heldri manna og kvennaflokkur
150 m skeið
Skráning verður á staðnum og lýkur henni kl. 13.50
„Hvetjum alla til að mæta og gera sér glaðan dag á einum stærsta viðburði félagsins, hvort sem er ríðandi, gangandi eða akandi.Vonumst til að sjá sem flesta,“ segir í tilkynningu frá stjórn félagsins.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH