Íþróttasjóður
Mennta- og menningarmálaráðuneytið auglýsir eftir umsóknum um styrki úr Íþróttasjóði sem starfar samkvæmt lögum nr. 64/1998 og reglugerð nr. 803/2008.
Veita má framlög til eftirfarandi verkefna:
- Sérstakra verkefna á vegum íþróttafélaga og samtaka þeirra sem miða að því að bæta aðstöðu til íþróttaiðkana
- Útbreiðslu- og fræðsluverkefna
- Íþróttarannsókna
- Verkefna samkvæmt 13. gr. íþróttalaga
Rannís hefur umsjón og eftirlit með Íþróttasjóði. Umsóknareyðublöð og leiðbeiningar er að finna á www.rannis.is Umsóknum skal skila á rafrænu formi.
Nánari upplýsingar veitir Andrés Pétursson, [email protected], sími 515-5833.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH