Sædynur seldur-

  • 12. mars 2012
  • Fréttir
Sædynur seldur-

Stóðhesturinn Sædynur frá Múla hefur verið seldur til Noregs og fer utan næstkomandi sunnudag.

Sædynur er glæsilegur fyrstu verðlauna klárhestur undan Dyn frá Hvammi og Litlu-Þrumu frá Múla, sammæðra Roða frá Múla. Sædynur hlaut 8,34 í aðaleinkunn í kynbótadómi árið 2008, þar af fékk hann einkunnina 9 fyrir vilja og geðslag, tölt, brokk, stökk og 9,5 fyrir fegurð í reið.

Sædynur hefur einnig látið mikið að sér kveða á keppnisbrautinni, varð í 11. sæti í B-flokki síðasta Landsmóts og komst í B-úrslit Íslandsmótsins. Þá mætti Ólafur Ásgeirsson með klárinn í töltkeppni Meistaradeildar og luku þeir keppni í 10. sæti.

Kaupandi Sædyns er norski landsliðsmaðurinn og atvinnuknapinn Nils-Christian Larsen og hyggst hann tefla Sædyn fram sem nýjum keppnishest að er heimildir herma. Nils-Christian hefur verið sigursæll á keppnisvellinum, sigraði m.a. fjórgangskeppni heimsbikarmótsins á Rey frá Dalbæ og hefur farið mikinn að undanförnu á fótaburðafáknum Mola frá Skriðu.

Nils-Christian þjálfar á ræktunar- og tamningamiðstöðinni Stall Myra, nálægt Osló. Þar er glæsileg aðstaða fyrir um þrjátíu hross, en meðal hrossa á staðnum eru fyrrum heimsmeistaranir Hvinur frá Holtsmúla og Tindur frá Varmalæk.

Ekki amalegur hestakosturinn þar á bæ!

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link