Skráningu lýkur á sunnudag

  • 26. júní 2015
  • Fréttir
Eiðfaxi Image
Íslandsmót í hestaíþróttum fer fram 8.-12. júlí.

Minnt er á að skráning á Íslandsmót í hestaíþróttum  lýkur á miðnætti sunnudagsins 28. júní í tilkynningu frá hestamannafélaginu Spretti.

„Skráning er í fullum gangi en við minnum á að skráningarfrestur til miðnættis sunnudagsins 28 júni.  Skráning er á www.sportfengur.com 

Stofnuð hafa verið tvö mót í Sportfeng.  Eitt fyrir fullorðna og ungmenni og annað fyrir börn og unglinga.  Þetta er gert til að einfalda vinnu í Kappa – biðjum þá sem skrá sig að hafa það í huga.

Skráningagjald er kr. 4500 fyrir barna-, unglinga- og ungmennaflokka,  kr. 6500 fyrir fullorðinsflokkana og kappskeiðgreinar kr. 4.000,- 

Skráning er staðfest með greiðslu – annað ekki tekið til greina.  

Hægt er að skrá til miðnættis 1 júlí en þá hækkar skráningargjaldið um kr. 2000 á hverja grein.

Allar frekar upplýsingar um skráningu fást með að senda tölvupóst á [email protected] 

Keppendur athugið að það er einn keppandi inná vellinum í einu nema í fjórgang barnaflokki en þá verða 3 inná í einu og riðið eftir þul.

Öll aðstaða er til staðar á Sprettssvæðinu og hesthús í boði.  Allar nánari upplýsingar um hesthúsapláss fást hjá framkvæmdastjóra Spretts Magga Ben.

Við hvetjum knapa til að fylgjast vel með upplýsingum á heimasíðu Spretts, á facebooksíðu Spretts og á viðburðinum “Íslandsmót í hestaíþróttum” sem stofnuð hefur verið.  Einnig verður gefið út kort um aðkomur að svæðinu og hvar hvaða viðburðir fara fram.“

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link