Kótilettukvöld Harðar
Senn líður að kótilettukvöldinu okkar hjá hestamannafélaginu Herði sem verður haldið 7.maí í Harðarbóli. Hvetjum Harðarfélaga til að taka með sér gesti.
Miðar verða seldir í Harðarbóli fimmtudaginn 5 . maí á á meðan Hrímnismót okkar Harðarmanna verður í fullum gangi.
Einnig er hægt að panta miða með því að leggja inná reikning:
549-26-4259 kt. 650169-4259 og senda staðfestingu á [email protected]
Miðaverð 3.500kr.
Húsið opnar kl.19.00 og borðhald hefst kl.19.30.
Matur: Kótilettur „ala mamma“, rauðkál, grænar baunir og rabbabarasulta. Royla búðingur í eftirétt.
Veislustjórn, fjöldasöngur, myndasýning.
Þetta er hátíð sem enginn má misssa af.
Fjáröflunarnefndin
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH