Gluggað í gömul blöð
Fyrsta tölublað Eiðfaxa leit dagsins ljós í júlí 1977 og er því að ljúka sínu 35. starfsári.
Tilgangur útgáfunnar var að flytja fregnir af því sem gerðist á sviði hestamennsku, en fjölmiðar þóttu heldur tregir við fréttaflutning af málefnum íslenska hestsins.
„Ég hafði baslað við það í nokkur ár að koma hestamennsku í blöðin, en það gekk misjafnlega. Hestamenn tóku umræðunni ágætlega en ritnefndir blaðanna voru ekki mjög hrifnar af þessu, fengu bara lykt af hrossaskít í nasirnar. Okkur þótti ástæða til þess að stofna sérstakt fréttablað um hestinn og úr varð Eiðfaxi,“ sagði Sigurjón Valdimarson, einn af stofnendum Eiðfaxa og fyrsti ritstjóri tímaritsins í viðtali við blaðið er hann varð áttræður í byrjun árs. Hann stofnaði málgagnið í félagi við Pétur Behrens, Gísla B. Björnsson, Sigurð Haraldsson, Árna Þórðarson, Sigurbjörn Bárðarson og Þorvald Árnason.
Stofnfundur útgáfufélagsins Eiðfaxa hf. var svo haldinn í febrúar sama ár og voru þá Árni Þórðarson, Pétur Behrens, Sigurður Haraldsson, Sigurður Sæmundsson og Þorvaldur Árnason kosnir í ritnefnd blaðsins.
Í fyrstu blöðunum kennir ýmissa grasa, ræktunarstefnur eru ræddar, fréttir af mótum þóttu skemmtilegar, reglur og reglugerðir voru að mótast og ýmis starfsemi hestamennskunnar kynnt.
Nú má glugga í nokkur af fyrstu tölublöðum Eiðfaxa hér:
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH