Lokadagur skráningar í Gæðingaveislu Sörla og Íshesta

  • 21. ágúst 2011
  • Fréttir

Mynd/dalli.is

Lokadagur skráningar í Gæðingaveislu Sörla og Íshesta

Skráningu lýkur í kvöld í Gæðingaveislu hestamannafélagsins Sörla og Íshesta. 

“Hér birtast drög að dagskrá mótsins sem hefst á miðvikudaginn kemur.

Drög að dagskrá:

Miðvikudagur, hefst kl.16:00
Tölt, 150m. og 250m. skeið

Fimmtudagur:, hefst kl.16:00
Barna-, unglinga-, og B-flokkur

Föstudagur:, hefst kl.16:00
Ungmenna- og A-flokkur, B-úrslit

Laugardagur: hefst kl.10:00
100. skeið og A-úrslit

 

Aðrar upplýsingar:

Glæsilegt gæðingamót sem verður haldið á Sörlavöllum 24.-27. ágúst. Mótið verður allt hið veglegasta með glæsilegum verðlaunum. Einn og einn verður inn á í einu og mun sína sitt prógram. Hitað verður upp í grillinu á kvöldin og allt gert til þess að öllum líði sem best í Hafnarfirðinum.

Skráning fer fram á netinu fimmtudaginn 18. ágúst – sunnudagsins 21. ágúst á netfangið ; [email protected]>

Það sem þarf að koma fram þegar skráð er:
Nafn og kennitala knapa.
IS númer og nafn hests.
Flokkur, keppnisgrein og upp á hvaða hönd skal riðið(í tölti).
Símanúmer knapa.

Skráningargjald er 3.000 krónur og skal leggja inn á reikning 0135-26-2871, kennitala 640269-6509. Setja skal nafn knapa í skýringu og senda staðfestingu á [email protected]

 

Flokkar í boði:
A flokkur opinn
A flokkur áhugamenn
B flokkur opinn
B flokkur áhugamenn
Ungmennaflokkur
Unglingaflokkur
Barnaflokkur
Tölt meistara
Tölt Opinn
Tölt áhugamenn
Tölt 21. árs og yngri
100 m. skeið
150 m. skeið
250 m. skeið

Taktu þessa daga frá og ekki láta þetta frábæra mót fram hjá þér fara, sjáumst á Sörlavöllum 24.-27.ágúst,” segir í tilkynningu frá mótanefnd Sörla.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link