HEÞ styrkir exemrannsóknir
Aðalfundur Hrossaræktarsamtaka Eyfirðinga og Þingeyinga var haldinn í Funaborg 11. apríl sl.
Auk venjubundinna aðalfundarstarfa fluttu þau Vilhjálmur Svansson og Sigurbjörg Þorsteinssdóttir afar áhugavert erindi um rannsóknir á vegum Tilraunastöðvar Háskóla Íslands að Keldum um sumarexem í íslenskum hestum. Markmið verkefnisins er að þróa ónæmismeðferð við sumarexemi. Verkefninu miðar vel en svona rannsóknir eru afar kostnaðarsamar og hætta á að þær stöðvist ef ekki fást auknir fjármunir til að halda þeim áfram. Óhætt er að segja að það sé eitt eitt af stærri hagsmunamálum íslenskra hrossaræktenda að finna úrlausn á þessum málum. HEÞ og aðildarfélög þess ákváðu að styðja við rannsóknarhópinn með 600.000.- kr. framlagi og var upphæðin afhent á fundinum.
Á meðfylgjandi mynd má sjá þau Sigubjörgu og Vilhjálm ásamt Ríkarði G. Hafdal formanni HEÞ sem afhenti styrkinn.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH