Stúlkur einoka verðlaun á Skeifudaginn

  • 23. apríl 2012
  • Fréttir
Eiðfaxi Image
Svala Guðmundsdóttir hlaut Morgunblaðsskeifuna, Ásetuverðlaun FT og Gunnarsbikarinn

Hinn árlegi Skeifudagur Grana var haldin hátíðlegur á Landbúnaðarháskóla Íslands sumardaginn fyrsta. Þessi dagur er hátíðisdagur hestamanna þar sem  nemar skólans sýna árangur vetrarins við tamningar og þjálfun. Reiðkennararnir Haukur Bjarnason og Randi Holaker á Skáney hafa séð um kennsluna í vetur.

Að þessu sinni var það Skagfirðingurinn Svala Guðmundsdóttir sem sópaði að sér verðlaunum.  Fékk viðurkenningu Félags tamningamanna fyrir bestu ásetuna, Morgunblaðsskeifuna fyrir samanlagðan árangur í þjálfun og tamningum og Gunnarsbikarinn en hann er veittur þeim sem sigrar gangtegundakeppni nemenda og er í minningu Gunnars Bjarnasonar.

Eiðfaxabikarinn fyrir bestan árangur í bóklegum áfanga í hrossarækt hlaut Hrafnhildur Tíbrá Halldórsdóttir og Heiðrún Halldórsdóttir Framfarabikarinn sem veittur er í minningu Reynis Aðalsteinssonar fyrir bestu ástundun og framfarir í reiðmennsku og þjálfun á námstímanum.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link