Skráningar hafnar í Reiðmanninn 2011-13

  • 26. apríl 2011
  • Fréttir
Skráningar hafnar í Reiðmanninn 2011-13

Endurmenntun Landbúnaðarháskóla Íslands hefur opnað fyrir skráningar í Reiðmanninn – nám í reiðmennsku og hrossarækt fyrir skólaárin 2011-2013. Áætlaður umsóknafrestur til 4. júní

Reiðmaðurinn er heiti á námskeiðsröð sem ætluð er fróðleiksfúsu hestafólki. Námið er tilvalið fyrir þá sem vilja auka færni sína í reiðmennsku og þekkingu á hrossarækt og almennu hestahaldi. Reiðmaðurinn  er á vegum Endurmenntunar Landbúnaðarháskóla Íslands.

Reiðmaðurinn er tveggja ára nám, sem hægt er að taka samhliða vinnu eða öðru námi. Bóklegi hlutinn er tekinn fyrst og fremst í fjarnámi en einnig er tveggja daga staðarlota á Hvanneyri á önn. Fjórar verklegar helgar eru á hverri önn þar sem unnið er með eigin hest.  Áætlað er að bjóða verklega námið fram í Húnavatnssýslu, á höfuðborgarsvæðinu og Hellu. Umsóknir eru tengdar því svæði sem næst er nema annað sé tekið fram.

Megináhersla er lögð á reiðmennsku. Einnig er fjallað um almenn atriði sem snúa að hrossarækt og almennu hestahaldi, s.s. fóðrun, frjósemi og kynbætur.

Námið er metið til 33 ECVET – eininga á framhaldsskólastigi og lýkur námskeiðsröðinni með sérstakri viðurkenningu frá Landbúnaðarháskóla Íslands.

Umsækjendur þurfa að hafa náð 16 ára aldri.

Endurmenntun LbhÍ sér um framkvæmdina en að auki koma Landssamband hestamannafélaga og Félag hrossabænda að náminu.“

Umsóknafrestur er til  4. júní 2011. Nánari upplýsingar um Reiðmanninn og umsóknaeyðublað má finna á www.lbhi.is/namskeid  undir Reiðmaðurinn í vinstri stiku eða um netfangið [email protected]

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link