Höfðingi fallinn frá – Höfði frá Húsavík –
Mikill höfðingi er fallinn frá. Margir muna eftir Höfða frá Húsavík, sem var kraftmikill alhliðahestur. Árið 1993 varð Sigurbjörn Bárðarson heimsmeistari í fimmgangi og gæðingaskeiði á Höfða og fjórði í 250m skeiði og þar með stigahæsti keppandinn.
Höfði var fæddur Gísla Haraldssyni á Húsavík árið 1982. Hann var undan Náttfarasyninum Berki frá Sandhólum (7.88) og Hrafnsdótturinni Vöku frá Brennigerði (8.21).
Síðustu árum ævi sinnar eyddi Höfði í góðu yfirlæti hjá Birgit Becker í Þýskalandi. „Ég verð ævinlega þakklát Sigurbirni og Fríðu konu hans fyrir að hafa eftirlátið mér Höfða eftir heimsmeistaramótið í Hollandi. Höfði var ekki aðeins frábær hestur heldur einnig stórbrotinn vinur minn,“ segir Birgit.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH