Ekkert hross með 10 fyrir höfuð

  • 18. desember 2013
  • Fréttir
Eiðfaxi Image

Ljóni frá Ketilsstöðum er með 10 fyrir hófa

né réttleika, samræmi eða háls, herða og bóga.

Það er ekki hátt hlutfallið af þeim hrossum sem státa af 10 fyrir einhvern eiginleika í kynbótadómi. Þegar skoðaðar eru sköpulagseinkunnir sést að aldrei hefur verið gefið 10 fyrir höfuð, samræmi, réttleika og háls, herðar og bóga.

Einn hestur hefur hlotið 10 fyrir bak og lend en það er hann Stikill frá Skrúð en Stikill er með 8.22 í aðaleinkunn.

Fimm hross hafa hlotið 10 fyrir fótagerð. Í þeim hópi er Diva frá Gategarden en hún er með 9.02 fyrir sköpulag, 8.68 fyrir hæfileika sem gerir 8.81 í aðaleinkunn. Fyrir utan að vera með 10 fyrir fótagerð er Diva með 9,5 fyrir hófa og stökk. 9.0 fyrir tölt, vilja og geðslag, fegurð í reið, fet, samræmi og háls, herðar og bóga.

Níu hross hafa hlotið 10 fyrir hófa en þar á meðal eru Ljóni frá Ketilsstöðum og Röst frá Eystri-Hól. Röst og Ljóni hlutu þessa einkunn árið 2011, en ekki hefur verið gefið 10 fyrir hófa síðan. Fyrst til að fá 10 fyrir hófa var Katla frá Dallandi en hún hlaut þessa einkunn árið 1994.

Algengast er að gefið sé 10 fyrir prúðleika en 38 hross hafa hlotið þá einkunn en í þeim hópi eru þeir Vafi frá Ysta-Mó, Eldur frá Torfunesi, Hvinur frá Vorsabæ og Víkingur frá Ási

Hross með 10 fyrir prúðleika:
Fæðingarnúmer Nafn Uppruni Sköpulag Hæfileikar Aðaleinkunn 

IS1998284301 Aþena Búðarhóli 7.94 7.92 7.93 
DE2002234248 Bíbí Ostetal 7.93 8.83 8.47
IS1999165490 Bjartur Efri-Rauðalæk 7.97 7.54 7.71
IS2006187805 Blár Blesastöðum
IS2004175280 Bútur Víðivöllum 7.74 7.89 7.83 
DE2007134735 Eiður Kronshof 8.19 8.22 8.21 
IS2007166206 Eldur Torfunesi 8.61 8.59 8.6 
SE2005104778 Fáni Skärmnäs 8.39 7.81 8.05 
IS1998156455 Fjalla-Eyvindur 8.73 7.92 8.24 
SE1999201722 Fluga Kvarnbacka 7.64  
IS2002155120 Garpur Lækjamóti 8.26 7.42 7.75 
IS1992288694 Garún Efri-Brú 7.83 7.45 7.6 
IS2002156168 Geysir Flögu 7.89 7.73 7.79 
IS1999287233 Gná Baldurshaga 8 7.49 7.69 
IS1994286718 Gríma Árbakka 7.82 7.93 
DE2007122047 Háfeti Heesberg 8.17  
IS2005158206 Hjörtur Krossi 8.15 7.62 7.83 
IS2001187960 Hvinur Vorsabæ 8.23 8.63 8.47
DE1998105148 Hörður Wiesenhof 8 8.06 8.04 
IS1995155106 Kalman Lækjamóti 8.33 8.04 8.16 
IS2001186919 Kani Feti 8.09 7.49 7.73 
SE2003102402 Keilir Gröna Gången 8.08 7.8 7.91 
IS2004156955 Kostur Skagaströnd 8.44 7.73 8.02 
IS2000258543Mura Syðri-Hofdölum 7.81 6.98 7.31 
IS1996125014 Ófeigur Þorláksstöðum 8.15 8.77 8.52 
IS2000265725 Ótta Jórunnarstöðum 7.99 7.17 7.5 
IS2005255184Rán Þorkelshóli 8.36  
IS1996187690 Samúel Þjótanda 7.89 8.0 7.96 
DE2008173875 Snjall Tiefenbachtal 8.26  
IS2005135811 Soldán Skáney 8.09 7.98 8.02 
DE2005284223 Sprengja Lipperthof 8.34 8.62 8.51 
IS2006184999 Stuðull Miðhúsum 7.69 7.96 7.86 
SE2006106531Tenor Konga 7.96 6.62 7.16 
IS2004158045 Vafi Ysta-Mói 8.19 8.68 8.49
DK2007108242 Víðar Guldbæk 8.24 8.3 8.28 
IS2006186665 Víkingur Ási 8.49 8.5 8.49
IS1994186688 Ypsilon Holtsmúla 8.23 7.81 7.98 
IS1995188801 Þyrnir Þóroddsstöðum 8.59 8.31 8.43

Hross með 10 fyrir fótagerð:
Fæðingarnúmer Nafn Uppruni Sköpulag Hæfileikar Aðaleinkunn 

SE1993204940 Diva Gategården 9.02 8.68 8.81 
IS1991187750 Frami Ragnheiðarstöðum 8.35 8.38 8.37
IS1982257033 Freyja Tumabrekku 8.48 8.16 8.29
IS1990266032 Hvesta Tungu 8.35 7.46 7.82
IS2005255184 Rán Þorkelshóli 8.54 7.84 8.12

Hross með 10 fyrir hófa:
Fæðingarnúmer Nafn Uppruni Sköpulag Hæfileikar Aðaleinkunn 

IS1987225109 Katla Dallandi 8.4 8.16 8.28
IS1991176188 Stefnir Ketilsstöðum 7.98 8.36 8.17 
SE1993204940 Diva Gategården 9.00 7.88 8.33 
IS1991176188 Stefnir Ketilsstöðum 7.95 8.1 8.03 
IS1992136222 Sindri Högnastöðum 8.18 8.17
IS1996187052 Glaumur Auðsholtshjáleigu 8.19 7.99 8.07
SE1995206571 Náttfaradís Wreta 8.44 8.63 8.56
IS1999186896 Seifur Efri-Rauðalæk 8.56 7.75 8.07 
IS2004176173 Ljóni Ketilsstöðum 8.61 8.19 8.36 
IS2005280623 Rös Eystri-Hól 8.37 8.0 8.15

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link