Gígja hlýtur Glettubikarinn -viðtal við Þórdísi Erlu-

  • 19. nóvember 2011
  • Fréttir
Gígja hlýtur Glettubikarinn -viðtal við Þórdísi Erlu-

Gígja frá Auðsholtshjáleigu hlýtur Glettubikarinn í ár. Hún skorar hæst þeirra átta hryssna sem hljóta heiðursverðlaun fyrir afkvæmi, með 127 í aðaleinkunn kynbótamats. Gígja er fædd 1995 undan Orra frá Þúfu og Hrafntinnu frá Auðsholtshjáleigu og er ræktuð og í eigu Þórdísar Erlu Gunnarsdóttur, sem eignaðist móður Gígju ung að árum.

 “Pabbi keypti Hrafntinnu af Hreggviði frænda mínum sem ræktaði hana. Hann hafði byrjað að temja hana og fannst hún ekki koma nógu hratt til þannig hún var keypt á 35 þúsund krónur  með það fyrir augum að vera reiðhross fyrir mig. Þá var ég þriggja ára. Verkefnið sem hún átti að fara í hafði eflaust töluverð áhrif á verðið.

Seinna kom þó í ljós að hryssan var fylfull og kastaði hún fjögurra vetra gömul hesti sem ég nefndi Gosa í höfuðið á uppáhalds svalanum mínum. Hrafntinna var svo tamin áfram og í ljós kom að hún var hinn mesti gæðingur. Gosi varð einnig feikna góður hestur, hlaut fyrstu verðlaun fyrir hæfileika og var notaður sem keppnishestur í fimmgang og var aðalreiðhestur Þórunnar frænku minnar,” segir Þórdís Erla og bætir við að afkvæmi Hrafntinnu, 17 talsins, hafi reynst vel, þau séu bæði viljug og skemmtileg. Alsystkinin Gígja og Gígjar standa þó upp úr. “Gígja er ofboðslega yfirveguð og örugg með sig. Hún hefur góða nærveru og útgeislun og það skín í gegn í afkvæmum hennar . Hún hefur ákveðna yfirgíra á tölti, brokki og skeiði og góð gangskil. Hún er mjög viljug og hefur trausta lund sem virðist erfast frá henni, það finnst mér eitt það verðmætasta við hana.”

Innt eftir því hvernig hún velji stóðhest með Gígju segir Þórdís Erla hún reyni að velja ólíkar ættlínur. “Ég reyni að velja hesta með góða byggingu og lofthæð. Gígju skortir ekki hæfileikana og hún hefur öfluga lend, góða hófa og fætur, en mætti vera lofthærri.  Ég hef notað Keili, Þyrni, Þórodd, Álfastein, Aron, Krák, Hnokka, Gaum og Topp. Finnst hún hafa komið hvað best út á móti Aron af þeim sem ég hef tamið, sá foli er mjög skemmtilegur og vel gerður.”

Þórdís Erla hefur tamið öll afkvæmi Gígju og segir margt sammerkt með þeim í tamningu. “Það fyrsta sem ég tek eftir að þau eigi sameiginlegt er “Tinnusvipurinn“ – ég  sé alltaf svip frá Hrafntinnu gömlu en hún hafði fallegt og gott auga. Flest fara þau á brokki í byrjun, eru hreingeng og með góð gangskil. Fetið er yfirleitt mjög gott og úrvals gott inn á milli. Þau eru öll alhliða hross, viljug og örugg með sig eins og mamman,” segir hún en Gígja hefur í dag eignast tíu afkvæmi, og hafa átta þeirra komist á legg og eru þau notuð bæði í ræktun og keppni.

“Hrafnadís og Þórhildur eru núna báðar staddar í Þýskalandi sem ræktunarhryssur. Þóra-Dís verður í þjálfun í vetur og stefnt með hana í dóm aftur en hún fer svo í ræktun hér heima. Hrafnar verður í þjálfun í vetur og stefnt með hann í kynbótadóm og vonandi ef allt gengur eftir á Landsmót í Reykjavík. Svo er það Hrafn frá Auðsholtshjáleigu, undan Kráki. Hann er í frumtamningu núna og fer vel af stað, er þjáll og skemmtilegur. Hreggviður er einn af mínum aðalkeppnishestum, fór meðal annars í 7,31 í úrslitum í fimmgangi í sumar. Ég mun halda áfram að keppa á honum nk. vetur.”

Í vor fékk Gígja rauðskjótt hestfolald undan Toppi frá Auðsholtshjáleigu og er von á afkvæmi undan Gaumi frá Auðsholtshjáleigu í vor, og ekki að ástæðulausu. “Ég fór upphaflega með hana undir Mátt frá Leirubakka en svo kom í ljós rétt fyrir landsmót að hún var ekki fengin og því erfitt að komast að hjá þeim hestum sem voru á leið á mót. Ég setti hana til Gaums áður en við skunduðum af stað norður. Gígja og Gaumur eru tvö af mínum uppáhalds hrossum, bæði með 9,05 fyrir hæfileika og Gaumur gríðalega stór og lofthár hestur. Þar að auki þekki ég þau mjög vel, þjálfaði þau bæði árin sem þau hlutu sína hæstu dóma. Gígja eignaðist Gaumsson í fyrra, hann er mikill sjarmur og ég ákvað að prufa Gaum einu sinni enn,” segir stórræktandinn Þórdís Erla en eins og áður sagði mun hún taka við Glettubikarnum á ráðstefnunni Hrossarækt 2011 sem erum það bil að hefjast á Hótel Sögu.

 
Afkvæmi Gígju:
(Afkvæmi/Faðir/Sköpulag/Kostir/Aðaleinkunn)
  • Hrafnadís            Keilir frá Miðsitju                          7,85/8,42 = 8,19
  • Hreggviður          Þyrnir frá Þóroddsstöðum            7,89/8,65 = 8,35
  • Þórhildur             Þóroddur frá Þóroddsstöðum      7,91/7,92 = 7,92
  • Þóra Dís              Álfasteinn frá Selfossi                  7,81/7,91 = 7,87
  • Hrafnar               Aron frá Strandarhöfði                 8,09/8,44 = 8.30
  • Hrafn                  Krákur frá Blesastöðum 1A
  • Nn                      Gaumur frá Auðsholtshjáleigu
  • Nn                      Toppur frá Auðsholtshjáleigu

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link