Síðasta keppni í KB-mótaröðinni eftir viku
Hestamannafélögin Faxi og Skuggi munu standa fyrir þriðja og síðasta móti KB mótaraðarinnar laugardaginn 19. mars nk. í Faxaborg í Borgarnesi. Mótið er opið öllum sem áhuga hafa. Keppt verður í tölti og fimmgangi og hefst mótið kl. 12.
Í tölti verður keppt í sex flokkum: Börn, Unglingar, Ungmenni, 1. flokkur (meira keppnisvanir), 2. flokkur (minna keppnisvanir) og Opinn flokkur.
Í fimmgangi verður keppt í 1. flokk og Opnum flokk.
Skráningar þurfa að berast fyrir kl. 22 miðvikudaginn 16. mars á netfangið [email protected] eða í síma 691-0280 eða 699-6116.
Eftirtalið þarf að koma fram: Keppnisflokkur, nafn og kennitala knapa, nafn og IS númer hests, lið( ef viðkomandi er í liði) og aðildarfélag eiganda hestsins. Skráningargjald er 1500.kr fyrir 1.,2.flokk, opinn flokk og ungmenni. (1.000 kr.fyrir annan hest) 1000 kr.fyrir börn og unglinga. Greiðist inn á reikning 0326-13-004810.Kt. 481079-0399 í síðasta lagi fimmtudaginn 17.mars annars verður viðkomandi ekki settur á ráslista. Sendið kvittun á [email protected] þar sem fram þarf að koma fyrir hvaða knapa og hest er verið að greiða.
Að keppni lokinni verða fimm stigahæstu knapar í hverjum flokki frá hestamannafélögunum Faxa og Skugga verðlaunaðir, þrír stigahæstu knapar í hverjum flokki óháð félagi verða jafnframt verðlaunaðir og þrjú stigahæstu liðin fá verðlaun auk þess sem vinsælasti knapinn verður valinn af áhorfendum.
Aðgangseyrir er 500 kr.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH