Sætir pungar og gellur á þorrablóti

  • 18. janúar 2013
  • Fréttir
Þorrahlaðborð Fáks verður í Fáksheimilinu 17. janúar og hefst klukkan fimm síðdegis. Harmonika, söngur og gleði fram eftir kvöldi.

Já það verða súrir pungar, súrmatur, hangikjöt, saltkjöt, harðfiskur, svið og allur almennur og góður þorramatur á boðstólum á Þorrablóti Fáks að ógleymdum sætum pungum og gellum sem mæta á svæðið. Einnig verður boðið upp á lambalæri fyrir þá sem eru súrir yfir þorramatnum að ógleymdum guðaveigum í fljótandi formi.

Eftir góðan útreiðartúr á laugardaginn er tilvalið að skella sér á Þorrahlaðborðið hjá Fáki sem verður í félagsheimili Fáks þann 17. janúar. Húsið opnar kl. 17:00 og stendur veislan fram eftir kvöldi. Harmonikkuleikur, matur, söngur og gleði – hvað er hægt að hugsa sér það betra.

Aðgangseyrir á Þorrahlaðborðið er aðeins kr. 3.500 fyrir fullorðna, 1.500 fyrir 7 – 14 ára og frítt fyrir 6 ára og yngri.
Allir velkomnir á Þorrablót hjá Fáki.
 
Þorranefndin

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link