9,0 fyrir skeið á hringvelli
Haukur Baldvinsson og gæðingur hans Falur frá Þingeyrum unnu það fágæta afrek á Íþróttamóti Sleipnis um helgina að fá í úrslitum í 5gangi í meðaleinkunn allra dómara fyrir skeið einkunnina 9,0.
Sýning þeirra félaga var bæði djörf og örugg, en Haukur ríður Fal í gegnum beygjuna á mjög greiðu stökki. Um leið og hann kemur inn á langhliðina, sest hann og tekur hestinn niður með einni lítilli ábendingu. Falur er ótrúlega fljótur að ná feikna hraða og niðurhæging er góð. Svona sýning sannar að hægt er að ríða fallegt skeið á hringvelli án þess að ganga nærri hestinum.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH