Kinnskær í keppni
Tamningamaðurinn Sigurður Matthíasson er með atorkusamari sýndendum kynbótahrossa. Þau Edda Rún Ragnarsdóttir eru í óðaönn að þjálfa vænar vonarstjörnur og hátt dæmda snillinga fyrir kynbóta- og keppnisbrautina.
„Við erum með á fjórða tug álitlegra hrossa á húsi og nær öllum er stefnt í kynbótadóm eða keppni. Þessa dagana erum við að taka út hross, skoða og leggja mat á þau. Þetta eru alltaf skemmtilegir tímar,“ segir Sigurður fullur tilhlökkunar.
Margir hlakka eflaust til að sjá gæðinginn Andra frá Vatnsleysu á brautinni í sumar. Sigurður segir Andra í góðu formi og þeir stefni á þátttöku B-flokks og töltkeppnum.
Þá keyptu hjónin nýlega helmingshlut í stóðhestinum Kinnskæ frá Selfossi. Kinnskær er fyrstu verðlauna Álfasteinssonur, sem fékk m.a. 9.5 fyrir skeið í kynbótadómi. Að sögn Sigurðar mun Edda Rún tefla honum fram sem keppnishesti í sumar.
Kinnskær og Edda Rún
Kinnskær og Edda Rún
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH