Landsbankamót Sörla um helgina
Fyrsta Landsbankamót vetrarins verður haldið laugardaginn 21. febrúar næstkomandi og hefst það stundvíslega kl. 13 að Sörlastöðum í Hafnarfirði að fram kemur í tilkynningu frá mótanefnd Sörla.
Dagskrá og keppnisflokkar:
- Skeið (100m)
- Pollar teymdir
- Pollar
- Börn
- Unglingar
- Ungmenni
- Heldri menn/konur
- 3. flokkur
- 2. flokkur
- 1. flokkur
- Opinn flokkur
„Nánar um pollana:
Þar sem reiðhöllin verður lokuð vegna framkvæmda verða pollakeppnin út í hvíta gerðinu svo framarlega að veðrið verði skaplegt.
Mótið er ætlað skuldlausum félagsmönnum í hestamannafélaginu Sörla. Hver keppandi má aðeins skrá í einn flokk og eru félagar hvattir til að sýna metnað við skráningu í flokka. Mótanefnd áskilur sér rétt til að sameina flokka ef ekki er næg þátttaka í einhverjum þeirra.
Landsbankamótaröðin er þriggja móta röð þar sem verðlaunað er fyrir hvert mót, auk þess sem keppendur safna stigum úr öllum þremur mótunum og verða stigahæstu knaparnir í hverjum flokki verðlaunaðir á síðasta mótinu.
1.sæti gefur 11 stig
2.sæti gefur 8 stig
3.sæti gefur 6 stig
4.sæti gefur 5 stig
5.sæti gefur 4 stig
1 stig fæst fyrir þá sem taka þátt.
Á þessu móti er keppt í tölti á beinni braut. Allir keppendur í sama flokki eru saman á vellinum. Þeir ríða hver á eftir öðrum til dóms eftir útgefinni rásröð. Keppt er annars vegar í hægu tölti og hins vegar frjálsri ferð á tölti eftir fyrirmælum þular. Auk þessa er keppt í 100 m. skeiði. Riðnir tveir sprettir og gildir besti tíminn úr öðrum hvorum sprettinum. Sjá nánar reglur mótraðarinnar hér: Reglur.
Skráning:
Skráningargjald er það sama og í fyrra og í hitti fyrra kr. 2000 fyrir alla flokka nema polla kr. 500 og skeið sem er kr.1500 krónur.
Skráning fer fram í dómpalli föstudaginn 20. febrúar frá kl. 18 – 21. Athugið að ekki er tekið við skráningum á annan hátt.
Greiða þarf skráningargjald um leið og skráð er á mótið. Hægt verður að greiða með kortum, posi á staðnum.
Hvetjum við alla til að taka þátt og byrja að sanka að sér stigum,“ segir í tilkynningunni.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH