Hver er prúðasti knapi Meistaradeildar?

  • 6. apríl 2011
  • Fréttir
Hver er prúðasti knapi Meistaradeildar?

Forsala aðgöngumiða fyrir Lokamót Meistaradeildarinnar er hafin. Mótið fer fram í Ölfushöllinni Ingólfshvoli annað kvöld og hefst mótið klukkan 19. Keppt verður í slaktaumatölti og fljúgandi skeiði í gegnum höllina.

Forsala aðgöngumiða fer fram í verslunum Top Reiter, Líflands og Baldvini og Þorvaldi og er aðgangseyrir 1.500 krónur.
Keppendur eru að leggja lokahönd á val sitt á hestum fyrir morgundaginn og verða ráslistar birtir síðar í dag.

Á heimasíðu Meistaradeildar fer fram netkosning þar sem áhangendur deildarinnar geta kosið um skemmtilegasta liðið og prúðasta knapann. Valið á liðinu/knapanum fer þannig fram að netkosningin hefur 50% vægi, dómarar 25% vægi og stjórn deildarinnar 25% vægi.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link