Haustfundur HÍDÍ
Haustfundur HÍDÍ verður fimmtudaginn 6. október n.k. í félagsheimilinu Harðarbóli í Mosfellsbæ. Að þessu sinni verður breskur hestamaður og reiðkennari, Peter De Cosemo, með fyrirlestur og sýnikennslu. Fyrirlesturinn og sýnikennslan verður á ensku, en báðir atburðirnir verða túlkaðir á íslensku.
Peter er reynslubolti í klassískri reiðmennsku og hefur áratugum saman stundað reiðkennslu út um allan heim. Hann á að baki farsælan keppnisferil í dressage og hefur unnið með knöpum á heimsmælikvarða eins og t.d. Jane og Christopher Bartle, en þau þrjú ráku saman reiðskóla í mörg ár í Englandi.
Fundurinn er ætlaður íþróttadómurum og gæðingadómurum til að auka þekkingu sína við að meta líkamsbeitingu hesta í keppni. Dómarar eru vinsamlega beðnir um að skrá sig inn á heimasíðu HÍDI.
Allir áhugasamir aðilar eru einnig velkomnir á verklegu sýnikennsluna í Reiðhöllinni gegn 2,000 kr gjaldi.
Dagskrá er eftirfarandi:
18.00 Fyrirlestur í Harðarbóli, einungis fyrir dómara.
19.30 Súpa fyrir dómara í boði HÍDI.
20.00 Sýnikennsla í Reiðhöllinni.
Vonumst til að sjá sem flesta.
Stjórn HÍDI.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH