Dagskrá Gæðingamóts Hrings og upplýsingar til áréttingar
Hér að neðan er dagskrá Gæðingamóts Hrings og sameiginlegs úrtökumóts Hrings, Gnýfara og Glæsis. Til áréttingar skal tekið fram að einungis er um opið mót að ræða í tölti og skeiði, aðrar greinar eru ekki opnar. Félagar í Gnýfara og Glæsi hafa þátttökurétt í forkeppni gæðingakeppninnar enda forkeppnin sameiginleg úrtaka hjá þessum félögum. Þá hefur verið ákveðið að hestar frá öðrum félögum sem skráðir voru til leiks í gæðingakeppninni fái að taka þá í forkeppninni sem gestir, vilji knapar þeirra það, en fái ekki rétt til þátttöku í úrslitum. Í úrslitum taka eingöngu Hringsfélagar þátt enda mótið gæðingamót Hrings. Ef þeir knapar annarra félaga en Hrings, Gnýfara og Glæsis sem hafa skráð sig til leiks í gæðingagreinum vilja ekki taka þátt í forkeppni sem gestir eru þeir vinsamlega beðnir um að tilkynna að þeir dragi sig úr keppni á netfangið [email protected]
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH