Miðasala hafin

  • 6. ágúst 2015
  • Fréttir
Eiðfaxi Image
Landsmót á Hólum

Forsala miða á Landsmót hestamanna sem fram fer á Hólum í Hjaltadal næsta sumar hófst í dag á vefnum www.landsmot.is og á www.tix.is.  Það voru Sigurður Ingi Jóhannsson Landbúnaðarráðherra og Lárus Ástmar Hannesson formaður stjórnar Landssambands Hestamannafélaga og stjórnar LM sem opnuðu miðasöluna á Heimsmeistaramóti íslenska hestsins sem nú fer fram í Herning í Danmörku.  Þar er landsmótið með öflugt kynningarstarf þar sem gestir fá m.a. að smakka íslenskar kræsingar eins og hangikjöt og Hólableikju, hlýða á íslenska tónlist um leið og þeir fræðast um komandi Landsmót.  Á næsta ári verða fimmtíu ár liðin frá Landsmóti á Hólum og því viðeigandi að þessi stórviðburður hestamanna snúi aftur á þetta forna menntasetur þar sem háskólanám í hestamennsku fer fram við Háskólann á Hólum.  Framkvæmdir við nýja og glæsilega vallaraðstöðu standa nú yfir á Hólum.

Sérstaklega hagstætt er að kaupa miða á Landsmót í forsölu, lægstu verðin eru í boði til næstu áramóta, þá hækkar verðið og dýrast verður að versla miða í hliðinu á mótið.  Verð miða í forsölu hefur verið lækkað frá síðasta Landsmóti og verð til unglinga lækkað verulega og börn undir 14 ára aldri frá frítt á mótið. Með þessu vilja aðstandur mótsins leggja áherslu á Landsmót er fjölskylduskemmtun, en fjölmargt verður gert til að búa til afþreyingu fyrir alla fjölskylduna.  

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link