Bflokkur forkeppni – Gæðingaúrtaka á Selfossi
Eftir mikla baráttu og frábærar sýningar í B-flokk gæðinga á Gæðingamóti Sleipnis, Ljúfs og Háfeta standa jöfn í 1. – 2. sæti Glóðafeykir frá Halakoti og Einar Öder Magnússon og Alfa frá Blesastöðum og Sigursteinn Sumarliðason…
með einkunnina 8,59.
Mikil barátta var um Landsmótssæti og skýrðist sú niðurstaða ekki fyrr en undir síðasta hest.
Margar frábærar sýningar litu dagsins ljós og ljóst að mikil og ströng keppni verður á komandi Landsmóti.
Fyrir Sleipni eru þau fjögur efstu Glóðafeykir og Einar Öder, Alfa og Sigursteinn, Loki og Ármann og Sjóður og Elsa.
Hjá Háfeta eru þeir Fengur og Sævar efstir inn á Landsmót og hjá Ljúf eru þau Skrámur frá Kirkjubæ og Sissel komin inná Landsmót.
Margt er framundan í dag með seinni umferð í A-flokk, Ungmennum, Unglingum og Börnum.
Einnig er vert að minna á veglegt og spennandi Töltmót í boði Netparta þar sem margir góðir hestar eru skráðir til leiks.
Töltmótið byrjar kl 17 á forkeppni og verða svo B-úrslit í kjölfarið og mótið endar svo í kvöld á A-úrslitum.
100.000 kr peningaverðlaun eru í boði fyrir efsta sæti.
Við hvetjum alla sem hafa unun af íslenska hestinum að koma á Brávelli á Selfossi og horfa á skemmtilegt töltmót.
Á morgun sunnudag verða svo úrslit í gæðingakeppni sem hefjast kl 13.
Gæðingamótanefnd Sleipnis
B flokkur
Forkeppni
Mót: IS2011SLE060 – Opið Gæðingamót Sleipnis, Ljúfs og Háfeta Dags.:
Félag: Sleipnir
Sæti Keppandi
40545 Glóðafeykir frá Halakoti / Einar Öder Magnússon 8,59
40545 Alfa frá Blesastöðum 1A / Sigursteinn Sumarliðason 8,59
3 Loki frá Selfossi / Ármann Sverrisson 8,49
4 Sjóður frá Sólvangi / Elsa Magnúsdóttir 8,38
5 Fengur frá Garði / Sævar Örn Sigurvinsson 8,34
6 Flúð frá Vorsabæ II / Erla Björk Tryggvadóttir 8,32
7 Dagur frá Brattholti / Sævar Örn Sigurvinsson 8,31
8 Sváfnir frá Miðsitju / Helgi Þór Guðjónsson 8,31
9 Katrín frá Litlu-Sandvík / Sigurður Sigurðarson 8,30
10 Kolbrún frá Efri-Gegnishólum / Rósa Birna Þorvaldsdóttir 8,30
11 Skrámur frá Kirkjubæ / Sissel Tveten 8,29
12 Friður frá Halakoti / Svanhvít Kristjánsdóttir 8,28
13 Vakar frá Kambi / Páll Bragi Hólmarsson 8,28
14 Brattur frá Austurkoti / Páll Bragi Hólmarsson 8,24
15 Tangó frá Sunnuhvoli / Arnar Bjarki Sigurðarson 8,21
16 Eldur frá Þórunúpi / Sigríður Pjetursdóttir 8,19
17 Kopar frá Reykjakoti / Hekla Katharína Kristinsdóttir 8,13
18 Húni frá Stuðlum / Sigrún Arna Brynjarsdóttir 8,06
19 Gylmir frá Enni / Jóhann G. Jóhannesson 8,04
20 Lukkudís frá Vatnsholti / Guðjón Sigurðsson 7,55
21-22 Þota frá Miðfelli 5 / Ingvi Karl Jóhannsson 0,00
21-22 Bergur frá Kolsholti 2 / Helgi Þór Guðjónsson 0,00
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH