Landsliðsnefnd LH á faraldsfæti
„Landsliðsnefnd LH mun verða á faraldsfæti þriðjudaginn 5. febrúar. Fulltrúar nefndarinnar ásamt liðsstjóra landsliðsins, Hafliða Halldórssyni, munu halda fund í félagsheimili Léttfeta kl.18:00 á Sauðárkróki og kynna lykill að vali landsliðsins, dagskrá nefndarinnar fram á sumar og áherslur liðsstjóra.
Áhugasamir eru hvattir til að mæta og kynna sér dagskrána og nýta sér tækifærið að spyrja nefndarmenn og liðsstjóra spjörunum úr!
Athygli er einnig vakin á því að á heimasíðu LH, www.lhhestar.is er nú komin sérstök síða sem þjónar sem upplýsingasíða fyrir landsliðið. Hana er að finna í valstikunni undir „Landslið“, segir í tilkynningu frá LH
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH