Gleðifundur skagfirskra hestamanna
Næstkomandi föstudagskvöld, 9. des. eru hestamenn boðaðaðir til gleðifundar í Tjarnarbæ við Sauðárkrók og hefst samkoman kl. 20:30. Í boði verða veitingar framreiddar af Bíbí og Auði. Afhent verða afreksverðlaun ársins til hrossaræktenda og knapa. Ræðumaður kvöldsins er Kristinn Hugason, fyrrv. hrossaræktarráðunautur BÍ.
Tilnefningar til hestaíþróttamanns Skagafjarðar 2011:
- Barnaflokkur: Ásdís Ósk Elvarsdóttir, Guðmar Freyr Magnússon, Ingunn Ingólfsdóttir, Þórdís Inga Pálsdóttir.
- Unglingaflokkur: Bryndís Baldursdóttir, Elín Magnea Björnsdóttir, Jón Helgi Sigurgeirsson
- Ungmennaflokkur: Hallfríður Óladóttir, Sigurður Rúnar Pálsson
- Fullorðinsflokkur: Elvar E.Einarsson, Magnús Bragi Magnússon, Þórarinn Eymundsson
Tilnefningar til kynbótaknapa Skagafjarðar ársins 2011: Bjarni Jónasson, Mette Mannseth, Þórarinn Eymundsson
Tilnefningar til hrossaræktarbús Skagafjarðar 2011: Flugumýri II, Hólaskóli, Prestsbær
Verið velkomin
Hestamannafélögin í Skagafirði og HSS
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH