Fleiri hestar í nærmynd

  • 31. desember 2012
  • Fréttir
Fleiri hestar í nærmynd

Eiðfaxi hefur gegnum tíðina birt í blöðum sínum fjölmargar greinar þar sem nafntoguð hross og ættbogar þeirra eru í nærmynd. Greinarnar eru fræðandi og skemmtileg lesning fyrir áhugafólk um hrossarækt. 

 
Við höfum verið iðinn við að opna fyrir lestur á slíkum greinum og má nálgast þær með því að velja hnappinn Hestar í nærmynd hér til hliðar. Þar má meðal annars lesa sig til um ættmæðurnar Hlökk frá Laugavatni, Ósk frá Brún, Auðnu frá Höfða og Golu frá Brekkum. Af ættfeðrum má meðal annars nefna höfðingjana Sörla frá Sauðárkróki og Náttfara frá Ytra-Dalsgerði og nýrri stjörnur á borð við Sæ frá Bakkakoti og Garra frá Reykjavík.
 
Góðan lestur!

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link