Næsta liðskynning – Árbakki / Norður-Götur
Næsta lið sem við kynnum til leiks í Meistaradeild í hestaíþróttum er Árbakki / Norður-Götur. Skipt hefur verið um varaknapa í liðinu frá því í fyrra en annars er liðið óbreytt og skipað þeim Hinriki Bragasyni, liðsstjóra, Huldu Gústafsdóttur og Teiti Árnasyni. Nýr varaknapi liðsins er Sveinn Ragnarsson.
Liðið lenti í öðru sæti í stigakeppninni á síðasta ári og voru Hulda, Hinrik og Teitur öll á meðal tíu stigahæstu keppenda í einstaklingskeppninni.
Hinrik Bragason, liðsstjóri, er tamningamaður og reiðkennari á Árbakka.
Hinrik er margfaldur heims-, Íslands- og Norðurlandameistari. Hann hefur einnig verið að gera góða hluti við sýningu kynbótahrossa undanfarin ár.
Hulda Gústafsdóttir er tamningamaður og reiðkennari á Árbakka. Samhliða rekstri Árbakka hesta reka þau Hinrik útflutningsfyrirtækið Hestvit ehf.
Hulda er margfaldur Íslands- og Norðurlandameistari og hefur jafnframt verið í íslenska landsliðinu á heimsmeistaramótum.
Teitur Árnason er ungmenni og kemur úr hestamannafélaginu Fáki. Teitur er margfaldur Íslandsmeistari í yngri flokkum en er jafnframt Íslandsmeistari í 150m skeiði 2008 – 2009. Hann hefur verið í íslenska landsliðinu bæði á
Norðurlanda- og Heimsmeistaramótum.
Sveinn Ragnarsson, varaknapi, rekur fyrirtækið Bílaklæðningar ehf. í Kópavogi. Hestamennska er hans áhugamál en hann temur og þjálfar sín hross sjálfur. Hann hefur verið í íslenska landsliðinu á heimsmeistaramóti og hefur jafnframt hampað Íslandsmeistaratitlum.
Árbakki er alhliða hestamiðstöð með frábærri aðstöðu til tamninga og þjálfunar. Nýlegt hesthús, reiðskáli og hringvöllur. Hestaverslun er stór þáttur í starfsseminni. Mikill fjöldi gæðinga og úrvals kynbótahrossa fer í gegnum stöðina á hverju ári.
Ræktunarbúið Norður Götur ehf. var stofnað árið 2007 af hjónunum Orra Ingvasyni og Auði Hansen sem búa þar ásamt börnunum sínum. Tilgangurinn að gera Götur að hrossaræktabýli til eftirbreytni. Markmið þeirra er að gera betur í dag en í gær.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH