Gæðingamót Smára og opin töltkeppni
Minnt á lokaskráningu á gæðingamót og opna töltkeppni Smára sem haldið verður í Torfdal á Flúðum laugardaginn 20. ágúst í fréttatilkynningu frá hestamannafélaginu.
„Skráningu þarf að skila fyrir kl. 20.00 miðvikudagskvöldið 17 ágúst á netfangið [email protected]
Í skráningu þarf að koma fram IS númer hest, nafn, litur, í hvaða flokki skal keppt og upp á hvora hönd skal riðið og nafn og kennitala knapa.
.
Skráningargjald er í fullorðins og ungmennaflokk 2500 kr fyrir fyrsta hest en 1500 kr eftir það og í barna og unglingaflokk 1500 kr.
Skráningargjald í töltkeppni er 3000 kr.
Sé greiðandi annar en knapi skal taka nafn knapa fram í skýringu
Skráningargjald skal leggja inná 325-26-39003 Kt. 431088-1509 og senda kvittun á [email protected]
Sjá nánar á www.smari.is“
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH