Arnar Bjarki býr sig undir sterka keppni – Viðtal

  • 9. mars 2011
  • Fréttir
Arnar Bjarki býr sig undir sterka keppni - Viðtal

Yngsti keppandi Meistaradeildarinnar, Hrímnismaðurinn Arnar Bjarki Sigurðarson, mætir nú í þriðja sinn til leiks í Ölfushöllina. Hann mun keppa á stóðhestinum Vonanda frá Bakkakoti en þeir sigruðu fimmgangskeppni ungmenna á Suðurlandsmótinu í hestaíþróttum í fyrra. Arnar Bjarki stefnir á að keppa á Vonanda í A-flokki gæðinga á Landsmótinu í sumar og verður því gaman að sjá hvernig þeim félögum reiðir af í keppni við reynslubolta Meistaradeildarinnar.

Hvernig hefur þú undirbúið þig fyrir mótið á morgun?

„Þjálfunin byrjaði eins og hver önnur vetrarvinna á því að byggja hestinn upp. En hálfum mánuði fyrir mót fór ég að krefja hann svolítið meira og sækja fótaburð og reisingu.“

Hvernig er að samræma þjálfun fyrir eins ólík mót eins og innanhúsmót Meistaradeildarinnar og gæðingakeppni Landsmótsins?

„Hesturinn þarf að vera góðum burði og gangi sáttur, hvort sem riðið er hægar, eins og á innahúsmótum, eða hraðar á gæðingamótum. Því hef ég uppbyggingu þjálfunarinnar svipaða fyrir þessar greinar.“

Hvernig líst þér á keppinautana?

„Þeir eru gríðarlega sterkir, þarna eru einfaldlega sterkustu knaparnir með sterkustu hesta landsins. Ég ætla að reyna að standa mig vel og ná því besta út úr hestinum mínum.“

Meistaradeildarvefur Eiðfaxa

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link