Hestakona kona ársins
Aníta Margrét Aradóttir var valin kona ársins 2014 af ritstjórn Nýs Lífs. Aníta vakti mikla athygli í sumar þegar hún tók þátt í kappreiðunum Mongol Derby. Nýtt Líf kom út í gær og prýddi Aníta forsíðu blaðsins ásamt því að ítarlegt viðtal við hana var í blaðinu. Aníta prýddi einnig forsíðu 9tbl. Eiðfaxa og var það í fyrsta sinn í sögu blaðsins sem hestur af öðru hestakyni prýddi forsíðuna.
Aníta telur það mikla viðurkenningu fyrir hestaíþróttina að kona ársins samkvæmt Nýju Lífi sé hestakona og erum við á Eiðfaxa sammála því.
Á Facebookarsíðu Nýs Lífs kemur þetta fram; „Ritstjórn Nýs Lífs hefur valið Anítu Margréti Aradóttur konu ársins 2014. Hún vakti verðskuldaða athygli í sumar þegar hún tók þátt í 1.000 kílómetra kappreið á villtum hestum í Mongólíu. Með framtaki sínu og áræðni hefur Aníta sýnt að allt er hægt ef viljinn er fyrir hendi.“
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH