Vormót í Fossgerði

  • 16. apríl 2012
  • Fréttir
Vormót í Fossgerði

Austfirðingar blása til vormóts í Fossgerði sunnudaginn 22. apríl nk. og hefst það kl. 13 að er fram kemur á vefsíðum hestamannfélagsins Freyfaxa og Blæs.

Keppt verður í eftirfarandi flokkum:

  • Byrjendaflokkur fyrir börn: Frjáls gangtegund, leyfilegt að teyma undir knöpunum.
  • T7 – Fyrir börn fædd 1999 og síðar: Hægt tölt 1.hringur og fegurðartölt 1.hringur upp á vinstri hönd.
  • T7 – Opinn flokkur fyrir minna vana knapa: Hægt tölt 1.hringur og fegurðartölt 1.hringu, upp á vinstri hönd.
  • T1 – Opinn flokkur fyrir meira vana knapa: Hægt tölt 1.hringur, snúið við, tölt með hraðabreytingum 1.hringur og yfirferðartölt 1.hringur.
  • Unghrossakeppni – þrír flokkar: hross fædd 2006 – 2007 – 2008,
    Ekki er æskilegt að hrossin hafið hlotið kynbótadóm.
    Keppnisform: 2 hestar inni á vellinum í einu, riðnir allt aðð 3.hringir, sýnandi velur hvaða gangtegund hann sýnir. (firmakeppnisform)

Úrslit verða riðin eftir hvern flokk.

Við skráningu skulu koma fram eftirfarandi atriði:

  • Nafn hests, litur og aldur hests
  • Nafn foreldra hests
  • Nafn knapa og eiganda
  • Óski knapar eftir að fá að ríða upp á ákveðna hönd í T1, verða þeir að láta þess getið við skráningu, annars er riðið upp á vinstri hönd.

Skráningu lýkur föstudaginn 20.apríl klukkan 21. Skráning á [email protected] eða í síma 8462371.

Skráningargjald er:  1500 kr.  á skráningu hjá fullorðnum, 1000 kr. á skráningu í byrjendaflokk og T7 fyrir börn

Skráningargjald greiðist í upphafi móts – Athugið að ekki verður posi á staðnum.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link