Íslandsmót haldin í sitthvoru lagi
Stjórn LH hefur hafnað beiðni hestamannafélagsins Spretts um að fá að halda Íslandsmót yngri flokka og Íslandsmót fullorðinna á sama tíma næsta sumar.
Stjórnin vísar í lög og reglur L.H. en í grein 5.2 segir að skipta skal upp Íslandsmóti og halda þau í sitthvoru lagi. Samkvæmt reglunum er þó heimilt sé að halda mótin saman, sé þess ekki nokkur kostur að halda þau í sitthvoru lagi.
Bæði Íslandsmótin verða haldinn á svæði hestamannafélagsins Spretts samkvæmt niðurstöðu kosninga á framhalds-Landsþingi LH í nóvember, en hestamannafélagið Hörður hafði einnig sótt um að halda Íslandsmót yngri flokka.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH