Skráningu lýkur í dag
Skráningu á Sölumótið sem haldið verður á laugardaginn 14.apríl lýkur í dag fimmtudag 12.apríl kl 23:59, endilega muna að skrá þá hesta sem eru til sölu og eru efnilegir keppnishestar. Ef veður leyfir þá verðum við úti á vellinum sem er í toppstandi á Skeiðvöllum. Mótið verður með svipuðu sniði og síðast, allir hestar sem taka þátt eru til sölu, þrír dómarar sem gefa tölur, úrslit riðin og frábær verðlaun í boði.
Þið sem eruð að spá í að kaupa keppnishest endilega komið og horfið á, það er aldrei að vita nema þinn draumakeppnishestur verði á sölumótinu á Skeiðvöllum á laugardaginn 14.apríl.
Nánari tímasetningar hvenær mótið hefst verður auglýst síðar og fer eftir fjölda skráninga.
Þær greinar sem keppt verður í er fjórgangur, fimmgangur og tölt T7.
Í skráningu skal koma fram IS-númer og nafn hests, litur, faðir, móðir, verðflokkur, keppnisgrein, knapi og umráðamaður ásamt upplýsinum um símanúmer og netfang seljanda og svo afrekaskrá ef seljandi vill.
Skoðið einnig nýja síðu sem sett var upp í sambandi við þetta sölumót, þar munu síðan einnig verða allar upplýsingar sem þið þurfið að vita og slóðin er southhorses.weebly.com
Þeir sem skrá geta einnig sent mynd,stutta lýsingu af hestinum og link á vídeó (ef það er til) og hesturinn verður einnig skráður inn á heimasíðuna.
Skráning er hafin á netfangið [email protected] og lýkur fimmtudagskvöldið 12.apríl kl 23:59. Skráningargjald er 3000 kr og greiðist inn á
586-14-402187 kt.291169-5389 um leið og skráð er. Endilega senda kvittun á netfangið [email protected].
Skylt er að skrá hrossið í verðflokk. Verðflokkarnir eru eftirfarandi:
0-600.000
600.000 – 1.200.000
1.200.000 – 1.800.000
1.800.000 – 3.000.000
3.000.000 +
Miðkot – midkot.is
Hemla – hemla.is
Arabær – arabaer.is
Ice Events – iceevents.is
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH