Íslandsmót fullorðinna – Skráningar.

  • 23. júní 2013
  • Fréttir
Íslandsmót fullorðinna - Skráningar.

 

Búið er að opna fyrir skráningar á Íslandsmót fullorðinna sem haldið verður á vegum Hmf. Faxa í Borgarnesi 11.- 14. júlí n.k. 

 

Enn tækifæri til að ná lágmörkum inn á mótið bæði sunnan- og norðanlands

Frestur til að skrá sig rennur út 2. júlí, fyrir þá sem ekki hafa enn náð tölum inn á mótið þá er enn tækifæri til að ná lágmörkum bæði sunnan og norðanlands. Hmf. Hörður er með opið íþróttamót þar sem skráningu lýkur næstkomandi þriðjudag auk þess sem opið íþróttamót (punktamót) verður haldið 26. júní á Sauðakróki, lýkur skráningu á það mót næstkomandi mánudag og því upplagt fyrir þá sem ekki eru núþegar komnir með lágmarkstölur inn á mótið að drífa sig að skrá.

 

Hesthúsapláss

Þeir sem þurfa hesthúspláss fyrir hrossin sín og/eða skammbeitarhólf þurfa að senda sérstaka beiðni þar um til [email protected] eða [email protected] 

 

Leiðbeiningar varðandi skráningar;

Farið inn á þessa slóð: www.sportfengur.com og smellið á SKRÁNINGAKERFI vinstra megin á síðunni (fyrir neðan Login hnappinn, athugið að ekki á að logga sig inn á SportFeng). Á forsíðu skráningakerfisins er smellt á Mót í valmynd. Hestamannafélag sem heldur mót er Faxi og áframhaldið rekur sig sjálft en munið að fara í Vörukörfu að skráningu lokinni og að klára þar öll skref í ferlinu.

Ef einhver lendir í vandræðum með þetta má hafa samband við Þórð í 893 1125 eða [email protected]

Ganga þarf frá greiðslu skráningagjalda með innlögn á bankareikning en þær upplýsingar koma fram í lok skráningarferlisins. Athugið að skráningin verður ekki virk fyrr en gjaldkeri hefur merkt við að greiðsla hafi borist!  Gjaldið er kr. 6.000 á skráningu.  Síðasti dagur skráninga er þriðjudagurinn 2. júlí og það sama gildir um greiðslu skráningagjalda.

 

Opnuð hefur verið heimasíða fyrir mótið sem mun vera nýtt við að uppfæra áhugasama hestamenn um mótið: www.islandsmotlh.is

Auk þess hefur verið opnuð facebooksíða: www.facebook.com/islandsmotihestaiþrottum2013

 

Rétt er að árétta það að árangur frá árinu áður gildir inn á Íslandsmót í ár, sem og allur árangur sem náðst hefur í opnum flokkum á löglegum mótum, t.d. T1 og T3 á árunum 2012 og 2013. Þá eru F1 og F2 einnig fullgildir, þ.e. allir fullorðinsflokkar (1.flokkur og 2.flokkur) og meistaraflokkur, sjá reglu 5.2. í lögum og reglum LH.

 

 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link