Uppskeruhátíðin um helgina

  • 6. nóvember 2012
  • Fréttir
Það styttist í hátíð hátíðanna í hestamennskunni. Uppskeruhátíð hestamanna fer fram á Broadway á laugardagskvöldið 10. nóvember.

Það styttist í hátíð hátíðanna í hestamennskunni því Uppskeruhátíð hestamanna fer fram á Broadway á laugardagskvöldið kemur, þann 10. nóvember.

Miðasalan er í fullum gangi á Broadway (533 1100) og spennan fyrir valinu á knöpum ársins að ná hámarki. Okkar glæsilegu íþróttamenn hljóta eftirtalin verðlaun á hátíðinni:

    ▪    Efnilegasti knapi ársins

    ▪    Skeiðknapi ársins

    ▪    Íþróttaknapi ársins

    ▪    Gæðingaknapi ársins

    ▪    Kynbótaknapi ársins

    ▪    Knapi ársins

    ▪    Heiðursverðlaun LH

    ▪    Ræktun keppnishesta

Gísli Einarsson fréttamaður og ritstjóri Landans mun fara með veislustjórnina, Ingó veðurguð mætir með gítarinn og hljómsveitin Von ásamt Magna Ásgeirssyni mun halda uppi fjörinu á ballinu.
Matseðillinn

    ▪    Forréttur: Laxatartar með pestó & brauði

    ▪    Aðalréttur: Ofnbakaður lambavöðvi með rótargrænmeti, rösti kartöflum & villisveppasósu

    ▪    Eftirréttur: Frönsk súkkulaðikaka með karamellukremi & rjóma

Verð á hátíðina, matur og ball er kr. 8.200 en stakur miði á ballið kostar kr. 2.500.
Nú er tækifærið til að hittast, gleðjast saman og fagna góðum árangri ársins 2012!

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link