Sjóbusl á Sjómannadag – myndir
Æskulýðsnefnd Sóta bauð æskulýðsnefndum hjá Fáki og Sörla í hópreið á Álftanes sunnudaginn 5. júní.
„Á milli 50-60 manns riðu frá félagshúsi Sótamanna norður á Eyri þar sem menn og hestar þutu um í fjörunni, rétt eins og á Löngufjörum væru. Síðan voru bakkarnir riðnir til baka og þeir sem vildu gátu farið í sjósund í fjörunni við Gestshús.
Tveir helstu sundgarpar Sóta leiðbeindu börnum og fullorðnum hvernig á að bera sig að í sjósundi og þó nokkrir létu sig vaða á kafasund meðan hinir stóðu og horfu á eða riðu út í Hrakhólma.
Að lokum enduðu allir út í félagshúsi þar sem allir gæddu sér á hamborgurum og pylsum í boði æskulýðsfélaga Sóta, Sörla og Fáks,“ segir í frétt frá æskulýðsnefnd Sóta.
Meðfylgjandi eru skemmtilegar myndir af sjóbuslinu.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH