Góð hross að koma til dóms á síðsumarsýningar kynbótahrossa
Hátíð frá Hemlu II, knapi er Árni Björn Pálsson. Mynd: Eiðfaxi
Þó farið sé að síga á seinni hluta kynbótaársins hér á landi, eru enn góð hross að mæta til dóms á kynbótasýningum. Þessa vikuna er þrjár kynbótasýningar í gangi, á Gaddstaðaflötum, í Hafnarfirði og á Hólum í Hjaltadal.
Á Gaddstaðaflötum eru 116 hross skráð til dóms. Þar stendur efst sem stendur hryssan Ronja frá Hólaborg með einkunnina 8,24 fyrir sköpulag og 8,60 fyrir hæfileika, aðaleinkunn 8,47. Ronja er undan Blysfara frá Fremra-Hálsi og Rán frá Þorkelshóli 2. Einnig er vert að geta dóms á hryssunni Hátíð frá Hemlu II, undan Þresti frá Hvammi og Hafrúnu frá Hemlu II. Hátíð hlaut 8,07 fyrir sköpulag og 8,28 fyrir hæfileika, aðaleinkunn 8,21 og hlaut Hátíð m.a. 9,5 fyrir brokk og hægt tölt. Knapi á báðum hryssum var Árni Björn Pálsson.
Í Hafnarfirði eru 68 hross skráð til dóms. Þar stendur efstur að svo komnu máli Njörður frá Feti, sonur Óms frá Kvistum og Arndísar frá Feti. Hann hlaut 8,46 fyrir sköpulag og 8,21 fyrir hæfileika, aðaleinkunn 8,30. Knapi var Teitur Árnason. Þá hlaut stóðhesturinn Vákur frá Vatnsenda einnig góðan dóm, Vákur, sem er undan Mídas frá Kaldbak og Dáð frá Halldórsstöðum hlaut 8,26 fyrir sköpulag og 8,32 fyrir hæfileika, aðaleinkunn 8,30. Knapi var Ragnhildur Haraldsdóttir.
Á Hólum í Hjaltadal eru 87 hross skráð til dóms. Þar stendur í augnablikinu efstur stóðhesturinn Vefur frá Akureyri. Hann er undan Spuna frá Vesturkoti og Byltingu frá Akureyri. Vefur hlaut 8,03 fyrir sköpulag og 8,42 fyrir hæfileika, aðaleinkunn 8,29. Knapi var Tryggvi Björnsson. Skuggadís frá Hríshóli 1 kemur næst í röð. Hún er undan Vita frá Kagaðarhóli og Mánadís frá Hríshóli 1. Skuggadís hlaut 8,16 fyrir sköpulag og 8,32 fyrir hæfileika, aðaleinkunn 8,27. Knapi var Agnar Þór Magnússon.
Sýningunni í Hafnarfirði lýkur með yfirliti á morgun fimmtudag, en á gaddstaðaflötum og á Hólum verður yfirlitssýning kynbótahrossa á föstudag.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH